

Uppeldis- og meðferðarráðgjafi á Mánabergi
Við á Mánabergi óskum eftir því að ráða metnaðarfullan uppeldis- og meðferðarráðgjafa til liðs við okkur. Leitum að háskólamenntuðum fagaðila í málefnum barna með áherslu á þroska og uppeldi.
Uppeldis- og meðferðarráðgjafi vinnur eftir velferðarstefnu Reykjavíkurborgar við að þjónusta börn og fjölskyldur sem vistuð eru utan heimilis á vegum Barnaverndar Reykjavíkur. Markmiðið er að veita börnum öryggi, umhyggju og virðingu í heimilislegu umhverfi á meðan leitað er lausna í málum þeirra. Einnig er starfað með forsjáraðilum/fjölskyldum í heild í nánu samstarfi í Greiningar- og leiðbeiningarvistun. Í starfinu er leitast við að greina styrkleika og hindranir, meta færni við dagleg verkefni, byggja upp einfalda og skýra rútínu í daglegu lífi og efla skjólstæðinga til virkni.
Um er að ræða 100% stöðu og unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum.
Starfið er laust nú þegar.
- Hafa umsjón og yfirsýn yfir þjónustuþarfir þeirra barna sem vistuð eru í úrræðið, sjá til þess að þau hafi þann aðbúnað sem þau þurfa og veita þeim öryggi, umhyggju, virðingu og stuðning við virkni í þeirra daglega lífi.
- Greina og í framhaldinu vinna með vanda fjölskylda sem vistaðar eru á Mánabergi.
- Taka virkan þátt í þverfaglegu samstarfi og samráði við þá aðila sem koma að málavinnslu barnsins eða fjölskyldunnar.
- Háskólamenntun á sviði uppeldis-, félags- eða heilbrigðisvísinda sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með börnum og foreldrum.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og hæfni til að miðla upplýsingum á faglegan hátt.
- Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði í faglegum vinnubrögðum.
- Reynsla af því að vinna í teymi.
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu máli og íslensku í rituðu máli.
- Bílpróf.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Íslenska
Enska
























