Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Skemmtilegt starf og sumarstarf í búsetukjarna

Við hjá búsetukjarnanum í Úugötu leitum að öflugum og framsæknum starfsmönnum til liðs við okkur á kjarna Mosfellsbæjar fyrir fatlað fólk með flóknar stuðningsþarfir. Um fyrsta kjarna þessarar tegundar er að ræða hjá Mosfellsbæ og því frábært tækifæri.

Við leitum að fólki í fullt starf, hlutastarf og sumarfstarf.

Gert er ráð fyrir því að starfsmenn vinni aðra hvora helgi í mánuði. Um er að ræða sólarhringsþjónustu á heimili fólks svo mikill kostur er ef fólk getur unnið fjölbreyttar vaktir (dag-, kvöld- og næturvaktir).

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hlutverk starfsmannsins er að styðja við og veita íbúum aðstoð við daglegar athafnir, félagslega virkni og stuðning til sjálfshjálpar.

Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og er markmið okkar að öll fái framúrskarandi þjónustu. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, að halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar- og félagslífs.

Unnið verður eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og valdeflingar. Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr.38/2018.

Menntunar- og hæfniskröfur

20 ára aldurstakmark.

Tala og skilja íslensku.

Hreint sakavottorð.

Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.

Reynsla af störfum með fötluðu fólki er mikill kostur.

Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.

Þjónustulund og jákvæðni í starfi.

Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.

Menntun sem nýtist í starfi er kostur.

Almenn tölvukunnátta.

Bílpróf.

Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Úugata 1D
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar