

Óska eftir aðstoðarkonu í Vesturbæinn
Ég er lífsglöð 26 ára kona búsett í Vesturbænum að leita mér að aðstoðarkonu í hlutastarf. Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, en ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. Meðal þeirra verkefni sem ég þarf aðstoð með er almenn heimilisstörf og aðstoð við persónulegar þarfir. Aðstoð við matarinnkaup, eldamennsku, akstur, félagslíf, íþróttir og atvinnu. Starfið er því mjög fjölbreytt og skemmtilegt.
Starfið er hlutastarf. Unnið verður á vöktum, dagvaktir, kvöldvaktir og næturvaktir. Vantar aðalega á dagvaktir og afleysingar núna en frá maí/júní vantar einnig á kvöldvaktir og næturvaktir.
Hæfniskröfur
Viðkomandi þarf að hafa bílpróf, vera reyklaus, hafa hreint sakavottorð og tala góða íslensku eða ensku.
Traust, frumkvæði, sveigjanleiki og stundvísi eru grunnskilyrði fyrir ráðningu.
• Reynsla af heimilishaldi og eldamennsku
• Þekking og reynsla af starfi með fötluðum
• Áhugi á menningarmálum og skapandi vinnu
• Góð hæfni í skipulagi og mannlegum samskiptum
• Að vera hvetjandi og hafa þolinmæði
Mikilvægt er að geta hafið störf sem fyrst og geta unnið yfir sumarið. Aðeins 25 ára og eldri koma til greina.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á vef NPA miðstöðvarinnar www.npa.is
Íslenska
Enska
















