
Akraneskaupstaður
Akranes er stærsta sveitarfélag Vesturlands með rúmlega 8.500 íbúa.
Hjá Akraneskaupstað starfa tæplega 800 manns í 20 stofnunum. Bærinn rekur tvo grunnskóla, fjóra leikskóla, frístundastörf, búsetukjarna, miðlæga skrifstofu, tónlistarskóla, bókasafn, slökkvilið og byggðasafn svo fátt eitt sé nefnt. Akranes er framsækið sveitarfélag sem hefur jákvæðni, metnað og víðsýni að leiðarljósi í þjónustu og uppbyggingu sveitarfélagsins.
Akranes er einstaklega fjölskylduvænt bæjarfélag þar sem gott er að búa og ala upp börn. Bærinn er bæði heilsueflandi og barnvænt samfélag og framfylgir stefnu um slíkt. Það sem einkennir Akranes er flatlendi þess og er því mjög þægilegt að ganga og hjóla um bæinn. Auk þess eru möguleikar til útivistar fjölbreyttir og stutt í ósnortna náttúru.

Sumarstarf í Búsetuþjónustu fatlaðs fólks
Um er að ræða fjölbreytt afleysingastörf yfir sumartímann í búsetukjörnum og Sambýli sem þjónusta fatlað fólk á heimili sínu.
Búsetuþjónustan sér um að veita fólki með langvarandi stuðningsþarfir aðstoð og stuðning til sjálfstæðs heimilishalds og félagslegrar þátttöku í samfélaginu.
Búsetuþjónustan vinnur eftir hugmyndafræði um valdeflingu og þjónandi leiðsögn. Starfsmenn þurfa að tileinka sér þessa hugmyndafræði og vinna eftir henni.
Æskilegt er að starfsmaður geti unnið samfellt yfir sumartímann frá miðjum maí og til miðjan ágúst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stuðningur við íbúa í þeirra daglega lífi í samræmi við ríkjandi hugmyndafræði búsetunnar og eftir þeim verklögum sem starfshópur vinnur eftir hverju sinni
- Hvatning og stuðningur við íbúa til sjálfshjálpar og félagslegrar virkni
- Félagslegur og heilsufarslegur stuðningur við íbúa
- Í starfinu felst allt daglegt heimilishald svo sem matseld, þrif, þvottur o.s.frv.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð almenn menntun
- Íslenskukunnátta er skilyrði
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Ökuréttindi og vilji til að keyra þar sem þjónustuþegi ferðast
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg
- Reynsla af starfi með fólki með einverfu æskileg
- Reynsla og þekking á starfi með fólki með geðræna erfiðleika æskileg
- Reynsla af störfum með fólki sem sýnir erfiða hegðun æskileg
- Jákvæðni, frumkvæði, skipulagshæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Að virðing sé höfð að leiðarljósi í samskiptum við þjónustuþega, aðstandendur og samstarfsfélaga
- Stundvísi, samviskusemi og jákvætt viðhorf
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Akraneskaupstaðar
- Viðkomandi þarf að vera líkamlega hraustur
- Æskilegt er að viðkomandi sé 20 ára eða eldri
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalbraut 4, 300 Akranes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Spennandi hlutastarf í þjónustukjarna.
Mosfellsbær

Skemmtilegt sumarstarf í búsetukjarna í Mosfellsbæ
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Óska eftir aðstoðarkonu í fullt starf
NPA miðstöðin

Fjölbreytt sumarstörf
Ás styrktarfélag

Ráðgjafi
Vinakot

Sumarstarf á íbúðarkjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Leita að NPA aðstoðarfólki / NPA assistants wanted
NPA miðstöðin

SUMARSTÖRF
Reykjavík - Mannauðs- og starfsumhverfissvið

Stuðningsfulltrúa vantar í sumarafleysingar á íbúðakjarna í Grafarvogi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Spennandi sumarstarf í búsetukjarna fyrir fatlað fólk
Búsetukjarnar í Skálahlíð

Aðstoðarfólk óskast
NPA miðstöðin

PA óskast í fullt starf/PA wanted for full-time position
Aðstoð óskast