

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til að starfa í verslun okkar Byko Granda. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er aðra hverja viku frá 9-17 og hina vikuna frá 10-18.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af sölu- og eða þjónustustarfi
- Ríka þjónustulund
- Stundvísi
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Afgreiðsla, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
- Áfyllingar
- Birgðaleiðréttingar
- Útstillingar
- Önnur tilfallandi verkefni
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 17.október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Karl Már Lárusson, ([email protected]) Verslunarstjóri.












