

Sölufulltrúi í valvöru - Fullt starf
Ert þú með góða þjónustulund, öguð vinnubrögð og hefur gaman af samskiptum við fólk?
Ef svo er, þá gætum við verið að leita af þér!
Við leitum af kraftmiklum aðila til starfa í valvörudeild!
Í valvörudeild er að finna baðinnréttingar, blöndunartæki, baðaukahluti, sturtuklefa, heita potta, lagnaefni, flísar og fylgihluti, hurðar, glugga, borðplötur, parket og meira til.
Starfið felur í sér afgreiðslu viðskiptavina ásamt áfyllingum, almennri umhirðu verslunar og önnur tilfallandi verkefni sem lögð eru fyrir.
Unnið er á vöktum frá kl. 08:00-16:15 aðra vikuna og 10:45-19:00 hina vikuna.
Um ræðir líflegt starf í hröðu umhverfi þar sem álagspunktar fylgja. Lyftarapróf kostur en ekki skilyrði. Æskilegt er að umsækjandi sé tilbúinn að taka lyftarapróf þar sem starfinu fylgir lyftaravinna.
- Afgreiðsla og ráðgjöf til viðskiptavina
- Áfyllingar
- Almenn umhirða verslunar
- Önnur tilfallandi verkefni
- Metnaður til að ná árangri
- Jákvætt hugarfar
- Geta til að vinna undir álagi
- Þjónustulund












