
ELKO
ELKO, stærsta raftækjaverslun landsins, opnaði þann 28. febrúar árið 1998 og varð strax frá upphafi leiðandi á sínu sviði á Íslandi.
ELKO hefur ávallt haft það að markmiði að bjóða þekkt vörumerki raftækja á lágu verði.
Verslanir eru sex og með samtals 5.000 m2 sölusvæði auk stórs vöruhúss.
Hjá ELKO starfa um 240 manns. Verslanir ELKO eru í Lindum, Skeifunni, Granda, Akureyri, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Vefverslun ELKO.is

Vörutiltekt í vefverslun ELKO - tímabundið starf
ELKO leitar að starfsfólki til starfa í vefverslun. Starfið felur í sér tiltekt og afgreiðslu pantana auk eftirkaupaþjónustu og úrlausn erinda viðskiptavina.
Starfið er tímabundið yfir háannatíma í nóvember og desember.
Helstu verkefni
- Vörutiltekt
- Afgreiðsla á vefpöntunum
- Úrlausn erinda
- Eftirkaupaþjónusta til viðskiptavina
- Vöruflutningur á höfuðborgarsvæðinu
Hæfniskröfur
- Íslensku- og enskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi færni í samskiptum og rík þjónustulund
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
- Hreint sakavottorð
- Bílpróf er skilyrði
Vinnutími
Vinnutími er eftir vaktafyrirkomulagi. Starfshlutfall verður eftir samkomulagi.
Vefverslun ELKO er opin alla daga vikunnar, og því geta vaktir fallið á laugardaga og sunnudaga.
ELKO starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Afsláttarkjör hjá ELKO, Lyfju, Krónunni og N1
- Aðgangur að velferðarpakka ELKO
- Aðgangur að fræðslupakka ELKO og Akademias
- Öflugt félagslíf með reglulegum viðburðum
- Starfsmannafélag með góðum vildarkjörum
- Niðurgreiddur hádegismatur
Frekari upplýsingar um starfið veitir Elvar Orri ([email protected]).
Umsóknarfrestur er til og með 20. október.
Hvetjum öll þau sem uppfylla hæfniskröfur að sækja um.
Auglýsing birt7. október 2025
Umsóknarfrestur20. október 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Starfsfólk í ísbúð og booztbar - Akureyri
Ísbúðin Akureyri

Service Assistants
Costco Wholesale

Afgreiðsla
Hollt & Gott

Starfsfólk í verslun - Steinar Waage Kringlan
S4S - Steinar Waage skóverslun

Sölustarf í verkfæraverslun
Þór hf.

Staðarskáli Hrútafirði
N1

Verslunarstjóri í Álfheimum
Ísbúð Huppu

Starfsfólk í verslun - Grandi
JYSK

Sölufulltrúi í valvöru - Fullt starf
BAUHAUS slhf.

Þorlákshöfn - tímavinna
Vínbúðin

Fullt starf í Hveragerði
Al bakstur ehf

Starfsmaður í verslun - Byko Grandi
Byko