

Sölufulltrúi Timburverslun Byko Breidd
Við hjá BYKO erum að leita að öflugum einstaklingi til liðs við okkur í timburverslun BYKO Breidd. Ef þú ert framsækinn og faglegur einstaklingur með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.
Vinnutími er aðra hverja viku frá kl. 8-18 og hina vikuna frá kl. 9-18. Unnið er annan hvern laugardag.
Við leitum að einstaklingi með:
- Reynslu af sölustarfi
- Þekkingu á byggingaefni, kostur
- Menntun í byggingafræðum, mikill kostur
- Ríka þjónustulund
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhuga á verslun og þjónustu
- Íslenskukunnátta, skilyrði
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sala, ráðgjöf og tilboðsgerð til viðskiptavina
- Afgreiðsla til viðskiptavina
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október en unnið verður úr umsóknum jafnóðum.
Allar nánari upplýsingar veitir Renzo Gústaf Passaro ([email protected]), verslunarstjóri og Rúnar Freyr Guðmundsson ([email protected]), aðstoðarverslunarstjóri.












