Akureyri
Akureyri
Akureyri

Starfsfólk í nýjan búsetukjarna í Hafnarstræti 16 Akureyri

Velferðarsvið óskar eftir starfsfólki í búsetuþjónustu í nýja búsetukjarnanum Hafnarstræti 16. Um er að ræða störf í vaktavinnu þar sem unnið er á morgun, kvöld, nætur og helgarvöktum. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í september 2024 eða eftir samkomulagi. Um ótímabundin störf er að ræða.

Velferðarsvið sér um að veita fólki fjölbreytta þjónustu sem miðar að því að styðja við sjálfstæða búsetu þess og skapa því aðstæður til að lifa sem eðlilegustu lífi á heimili sínu sem utan þess.

Velferðarsvið Akureyrarbæjar vinnur eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn (gentle teaching) og valdeflingu. Starfsmenn þurfa að tileinka sér þessa hugmyndafræði og vinna eftir henni.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita íbúum persónulegan stuðning og aðstoða þá við að njóta menningar-tómstunda – og félagslífs.
  • Aðstoða við allar athafnir daglegs lífs.
  • Störfin fela í sér öguð og skipulögð vinnubrögð.
  • Almenn heimilisstörf.
  • Samskipti við ýmsa þjónustuaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gott vald á mannlegum samskiptum og áhugi á að starfa með fólki.
  • Sveigjanleiki, samviskusemi, lipurð og jákvætt viðhorf til fólks og vinnu sinnar.
  • Nýfengin reynsla af starfi með fötluðum. Reynslu skal tilgreina í umsókn.
  • Þekking á hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn og Valdeflingu er kostur. 
  • Geta til að vinna eftir skipulagi og undir miklu álagi, ásamt því að geta tekið sjálfstæðar ákvarðanir.
  • Bílpróf.
  • Starfið er líkamlega erfitt og krefst því mjög góðs líkamlegs atgervis.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing stofnuð2. júlí 2024
Umsóknarfrestur14. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hafnarstræti 16, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Starfsgreinar
Starfsmerkingar