Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hey! Laust starf í skemmtilegum íbúðakjarna

Íbúðakjarninn Rangársel 16-20 óskar eftir starfsfólki í skemmtilegt og krefjandi starf með fólki með þroskaskerðingu og skildar raskanir. Leitast er eftir að skapa jákvætt og heilsueflandi starfsmannaumhverfi sem skilar sér í þjónustu við íbúa.

Tekið er vel á móti nýju starfsfólki og fá allir aðlögunartíma. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf, þjónandi leiðsögn og Bjargráðakerfinu Björg.

Um er að ræða sumarstarf og staðan er laus strax, starfshlutfall eftir samkomulagi. Íbúakjarninn Rangársel 16-20 er sólahringsheimili og um er að ræða vaktavinnu. Ætlast er til að starfsmenn vinni aðra hverja helgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að hvetja og styðja einstaklinga til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð.
  • Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
  • Að sinna umönnun og vera vakandi fyrir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
  • Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
  • Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki æskileg.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Góð íslenskukunnátta C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Gilt ökuskírteini.
Auglýsing stofnuð3. júlí 2024
Umsóknarfrestur11. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Stundvísi
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar