Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Iðjuþjálfi í heimahjúkrun í Efri byggð

Austurmiðstöð Reykjavíkurborgar auglýsir lausa stöðu iðjuþjálfa í heimahjúkrun heimaþjónustunnar í Efri byggð. Staðan er laus til eins árs frá ráðningu til afleysinga með möguleika á framlengingu. Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, félagsþjónustu og endurhæfingarteymis með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.

Mikil þróunarvinna er á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Innleiðing velferðartækni ásamt sérhæfðum verkefnum sem tengjast nýju þverfaglegu, hreyfanlegu öldrunarteymi, með það að markmiði að styðja enn frekar við sjálfstæða búsetu aldraðra í eigin húsnæði.

Um er að ræða 100% starf á dagvinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skipuleggur einstaklingsbundna iðjuþjálfun

Metur færni skjólstæðinga við athafnir daglegs lífs og metur þörf fyrir þjónustu

Metur þörf fyrir hjálpartæki og breytingar á nærumhverfi

Veitir ráðgjöf og fræðslu fyrir aðstandendur inn á heimilum

Samskipti við sjúkraliða, hjúkrunarfræðinga, starfsfólk félagslegrar heimaþjónustu, skjólstæðinga, aðstandendur sem og við aðrar stofnanir

Tekur þátt í þverfaglegu samstarfi og verkefnum

Menntunar- og hæfniskröfur

Íslenskt starfsleyfi frá embætti landlæknis

Starfsreynsla sem iðjuþjálfi æskileg

Reynsla af teymisvinnu

Góð samskipta- og skipulagshæfni

Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum

Íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma)

Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar

Fríðindi í starfi
  • Heilsustyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Menningakort Reykjavíkuborgar
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • Fjölmörg tækifæri til fræðslu og starfsþróunar
Auglýsing stofnuð27. júní 2024
Umsóknarfrestur31. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hraunbær 119, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar