Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Iðjuþjálfi

Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi iðjuþjálfa sem starfar á Reykjalundi.

Laus er til umsóknar staða iðjuþjálfa, sérfræðingur 1, á Reykjalundi.

Á Reykjalundi starfa átta þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.

Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk iðjuþjálfa, sjúkraþjálfarar, talmeinafræðingar, sálfræðingar, næfingarfræðingar, félagsráðgjafar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst eða september nk.

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Iðjuþjálfafélags Íslands og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk stofnanasamnings Iðjuþjálfafélags Íslands og Reykjalundar.

Upplýsingar um starfið veita Óskar Jón Helgason framkvæmdastjóri þjálfunar og ráðgjafar oskarh@reykjalundur.is og Guðbjörg Gunnarsdóttir mannauðsstjóri gudbjorg@reykjalundur.is

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Auglýsing stofnuð24. júní 2024
Umsóknarfrestur8. júlí 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar