Viltu vera hjálparhönd í daglegu lífi
Framhaldsskólanemi óskar eftir áreiðanlegum aðstoðarkonum í fjölbreytt og skemmtilegt starf
Ég er 15 ára stelpa í Verzlunarskóla Íslands og er að leita að nýjum NPA aðstoðarkonum til að bæta í teymið mitt. Ég nota hjólastól og er aðstoðin bæði heima og í skólanum og við það sem ég er að gera hverju sinni. Um mjög fjölbreytilegt starf er að ræða. Tilgangurinn með notendastýrðri persónulegri aðstoð (NPA) er að ég geti lifað eðlilegu lífi en NPA byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf óháð fötlun.
· Aldur: 19-26 ára
· Starfshlutfall: 60-100%
· Viðkomandi þarf að geta hafið störf í byrjun ágúst.
· Vinnutíminn er frá 6:30-16:30 tvo til þrjá virka daga og möguleiki á aukavöktum seinni partinn, á kvöldin og um helgar.
· Um vaktavinnu er að ræða og laun eru greidd skv. kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.
· Viðkomandi þarf að vera með bílpróf og hafa afnot af bíl.
· Nauðsynlegt er að viðkomandi geti umgengist hunda.
· Mikilvægt er að viðkomandi geti tileinkað sér sveigjanleika í starfi, sé ábyrgur og stundvís.
· Meðmæli skulu fylgja umsókn.
Ef þið hafið spurningar má senda þær á netfangið npaadstodarverkstyra@gmail.com