
Ísland Duty Free
Ísland Duty Free rekur fríhafnarverslanir á Keflavíkurflugvelli og býður upp á fjölbreytt úrval af vörum. Verslanirnar eru opnar allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Fyrirtækið er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Gebr. Heinemann sem ýmist dreifir vörum eða rekur sambærilegar verslanir í yfir 100 löndum.

Sérfræðingur á fjármálasviði
Ísland Duty Free á Keflavíkurflugvelli leitar að sérfræðingi á fjármálsvið. Starfið heyrir undir fjármálastjóra og er unnið í nánu samstarfi við bókhaldsdeild móðurfyrirtækisins í Hamburg. Viðkomandi mun bera ábyrgð á margvíslegum verkefnum tengdum reikningshaldi og að uppgjör séu kláruð á réttum tíma eftir bestu aðferðum hverju sinni.
Um nýtt starf er að ræða og hefur viðkomandi tækifæri að móta starfið í samstarfi við fjármálastjóra.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn uppgjörsvinna
- Ábyrgð á að fjárhagsupplýsingar skili sér tímanlega og rétt til móðurfélagsins og tengdra aðila
- Umsjón með greiðslum og bankafærslum
- Umsjón með ferðakostnaði og kreditkortum
- Afstemming reikninga frá innlendum viðskiptavinum í samstarfi við móðurfélag
- Áætlanagerð og aðrar greiningar
Menntunar- og hæfniskröfur
- Viðskiptafræðimenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af bókhaldi eða öðrum fjármálatengdum störfum
- Þekking á SAP er kostur
- Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð þjónustulund og sveigjanleiki
- Góð enskukunnátta
Auglýsing birt4. september 2025
Umsóknarfrestur14. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Bókhaldsfulltrúi
Coripharma ehf.

Reikningshald og bókhald – Viðskiptafræðingur / viðurkenndur bókari
Konvin / MyGroup

Sérfræðingur á fjármálasviði
Gildi

Viðskiptastjóri innviða á mannvirkjasviði
Samtök iðnaðarins

Quality Specialist
Controlant

Fjármálastjóri
Knattspyrnufélagið Valur

Aðstoðarmanneskja skrifstofustjóra
Norconsult Ísland ehf.

Bókhald
Endurskoðun Flókagötu

Sérfræðingur í lánadeild
Stapi lífeyrissjóður

AÐALBÓKARI
Flóahreppur

Viðskiptastjóri á Akranesi
Landsbankinn

Business Partner þróunarsviðs
atNorth