Knattspyrnufélagið Valur
Knattspyrnufélagið Valur

Fjármálastjóri

Knattspyrnufélagið Valur óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan einstakling í stöðu fjármálastjóra félagsins. Um fullt starf er að ræða á skemmtilegum og lifandi vinnustað. Framundan eru fjölbreytt og skemmtileg verkefni.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegri stjórn fjármála og reksturs
  • Ábyrgð, umsjón og eftirfylgni með áætlanagerð og reikningshaldi
  • Þátttaka í stefnumótun og umsjón með þróun og innleiðingu verklags
  • Eftirlit, greining og gerð rekstraryfirlita og stjórnendaupplýsinga
  • Uppgjör, launamál og almenn bókhaldsverkefni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði viðskipta, fjármála, endurskoðunar eða skyldra greina
  • Reynsla og áhugi á fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörum
  • Reynsla eða áhugi á störfum innan íþróttahreyfingarinnar
  • Góð kunnátta í DK er kostur
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
  • Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
  • Góð tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Um Val:

Valur er eitt sigursælasta íþróttafélag landsins og það sigursælasta þegar tekið er tillit til Íslands- og bikarmeistaratitla í meistaraflokki karla og kvenna í þremur vinsælustu íþróttagreinunum, handknattleik, körfuknattleik og knattspyrnu. Á undanförnum áratugum hefur félagið einbeitt sér að starfi í þessum þremur íþróttagreinum. Valur er félag með ríka hefð fyrir aga, sigurvilja, dugnaði og heilbrigði. Á Hlíðarenda vinna allir að sama markmiði, þ.e. að halda merki Vals hátt á lofti með einkunnarorðunum: Látið aldrei kappið bera fegurðina ofurliði.

Umsóknarfrestur er til og með 16. september 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.isog þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) í síma 511-1225

Auglýsing birt3. september 2025
Umsóknarfrestur16. september 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hlíðarendi 105
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.DKPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Löggiltur endurskoðandiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Nákvæmni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar