
Konvin / MyGroup
Konvin is a growing modern Icelandic travel and hospitality brand, operating three interlinked business areas:
Konvin Hotel, a 4-star airport hotel with 140 spacious rooms and a new restaurant.
Konvin Car Rental, a fast growing rental company with a diverse 200+ vehicle fleet.
Konvin Fasteignir, a portfolio of commercial real estate, including rental facilities, office hotel and shared infrastructure
Konvin is owned by MyGroup, an Icelandic investment firm. All business units - hotel, car rental, and real estate - are supported by a central team that manages strategy, finance, sales & revenue management, marketing, and IT.

Reikningshald og bókhald – Viðskiptafræðingur / viðurkenndur bókari
MyGroup ehf. leitar að öflugum og nákvæmum aðalbókara eða viðskiptafræðingi sem vill taka virkan þátt í að styðja við áframhaldandi vöxt og rekstur samstæðunnar. Starfið er fjölbreytt og krefjandi, með áherslu á bókhald, uppgjör, afstemmingar og ferla sem tengjast daglegum rekstri.
Undir MyGroup heyra þrjú sjálfstæð rekstrarfélög; Konvin Hótel, Konvin Car Rental og Konvin Fasteignir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjárhags-, lánardrottna- og viðskiptamannabókhald.
- Reikningagerð og afstemmingar tekjufærslna og færsluhirðingar frá hótel- og bílaleigukerfum.
- Afstemmingar banka, viðskiptamanna, lánardrottna og helstu fjárhagsreikninga.
- Eftirfylgni með innheimtu og undirbúningur greiðslubunka.
- Virðisaukaskattskil og önnur lögbundin skil til opinberra aðila.
- Samskipti við viðskiptavini, birgja, endurskoðendur og opinbera aðila.
- Þátttaka í undirbúningi mánaðarlegra uppgjöra, samstæðuuppgjöra og reglulegrar skýrslugjafar.
- Ýmis tilfallandi verkefni og stuðningur við rekstrarfélög samstæðunnar, þar á meðal áframhaldandi þróun á skipulagi reikningshalds í samvinnu við stjórnendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. viðskiptafræði eða viðurkenndur bókari.
- Reynsla og góður skilningur á reikningshaldi er áskilin.
- Þekking á Business Central er kostur.
- Góð færni í Excel og framúrskarandi tölvukunnátta.
- Skipulögð vinnubrögð, nákvæmni og sterk ábyrgðartilfinning.
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
Um vinnuumhverfið
- Allar færslur, innheimta og greiðslur fara í gegnum bókhaldskerfi félagsins, sem er beintengt við banka, samþykktarkerfi og önnur upplýsingakerfi.
- Mánaðarleg uppgjör, daglegar afstemmingar og lotun tekna og kostnaðar eru hluti af reglulegu verklagi.
- Stærstur hluti reikningsútgáfu og móttöku reikninga er rafrænn, bókhald samstæðunnar er pappírslaust og notast er við rafrænt samþykktarkerfi fyrir alla innkaupareikninga.
- Reikningshaldið er hugsað sem lifandi hluti af rekstrinum, með ferlum og skýrslugjöf sem styður við ákvarðanir.
Við bjóðum
- Fjölbreytt og krefjandi starf þar sem reikningshald er lifandi hluti af rekstrinum.
- Tækifæri til að hafa áhrif á ferla, skýrslugjöf og ákvarðanir í reikningshaldi og fjármálum.
- Möguleika til vaxtar í starfi í síbreytilegu og krefjandi umhverfi.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, [email protected]
Auglýsing birt1. september 2025
Umsóknarfrestur30. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Keilisbraut 771, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur á fjármálasviði
Gildi

Viðskiptastjóri innviða á mannvirkjasviði
Samtök iðnaðarins

Sérfræðingur á fjármálasviði
Ísland Duty Free

Quality Specialist
Controlant

Aðstoðarmanneskja skrifstofustjóra
Norconsult Ísland ehf.

Sérfræðingur í lánadeild
Stapi lífeyrissjóður

AÐALBÓKARI
Flóahreppur

Viðskiptastjóri á Akranesi
Landsbankinn

Business Partner þróunarsviðs
atNorth

Deildarstjóri þjónustudeildar á Austursvæði
Vegagerðin

Spennandi starf í fasteignaumsýslu
FSRE

Bókari - Knattspyrnufélagið Víkingur
Knattspyrnufélagið Víkingur