

Rekstrargreining og vörustjórnun (Operations & Purchasing Controller)
Nespresso á Íslandi leitar að framsýnum, gagnadrifnum og lausnamiðuðum einstaklingi sem brennur fyrir því að umbreyta gögnum í skýra innsýn og styðja við rekstrarákvarðanir.
Í þessu hlutverki starfar viðkomandi þvert á teymi, bæði á Íslandi og í Finnlandi, og er lykilaðili í þróun og framsetningu á upplýsingum sem styðja við rekstur, vöruflæði og stefnumótun.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir gagna drifinn einstakling sem vill vaxa með alþjóðlegu vörumerki, stuðla að rekstrarlegum framförum og þróa gögn og ferla sem skipta máli.
- Gagnavinnsla og greining með skýrum rekstrartilgangi
- Þróun og viðhald á gagnagrunnum
- Myndræn framsetning og skýr túlkun gagna fyrir stjórnendur og samstarfsfólk
- Sjálfvirknivæðing stjórnendaskýrslna og rekstrarupplýsinga
- Umsjón með innkaupum og vöruflæði
- Þátttaka í þróun ferla og gagnaflæðis í samstarfi við UT teymi
- Önnur fjölbreytt verkefni í skráningu, greiningu og rekstri
- Menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á sviði innkaupa er mikill kostur
- Grunnþekking á Business Central er mikill kostur
- Brennandi áhuga á gagnagreiningum
- Geta til að sjá heildarmyndina og smáatriðin í senn
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og lausnamiðuð nálgun
- Góð samskiptahæfni, fagmennska og heiðarleiki
- Frábæra vinnuaðstöðu miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu
- Möguleika á að vinna með vörumerki sem leggur áherslu á sjálfbærni og gæði
- Tækifæri til að móta starf og áhrif þess á fyrirtækið
- Nýjustu tæknilausnir og þróunarverkefni innan gagna og rekstrar
- Þverfaglegt og mannlegt starfsumhverfi þar sem frumkvæði fær að njóta sín
Upphaf starfs: Sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi - mikill kostur ef umsækjandi getur hafið störf í byrjun ágúst.
Sendu inn ferilskrá og stutt kynningarbréf ef þú vilt vera lykilþáttakandi í smáu en samhentu teymi - hlökkum til að heyra frá þér.
Nánari upplýsingar veitir Benóný Dagur Brynjarsson (CIO), [email protected]













