
Lögfræðingur
Umboðsmaður skuldara (UMS) óskar eftir að ráða metnaðarfullan lögfræðing sem vill leggja sitt af mörkum til að bæta líf einstaklinga í fjárhagsvanda. Leitað er að þjónustulunduðum einstaklingi sem vill takast á við krefjandi og mikilvæg verkefni. Um fullt starf er að ræða og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hlutverk UMS er að gæta hagsmuna og réttinda fólks í fjárhagsvanda. UMS hefur milligöngu um samskipti og samninga við kröfuhafa með hagsmuni einstaklinga að leiðarljósi og veitir fólki, sem er í verulegum skulda- og greiðsluvanda, endurgjaldslausa aðstoð við að fá yfirsýn á fjármál sín og leita leiða til lausna.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta einstaklinga vegna greiðsluerfiðleika og vinnsla umsókna um úrræði.
- Afgreiðsla umsókna og ákvarðanataka á grundvelli laga nr. 101/2010 og 9/2014.
- Umsjón með gerð samninga um greiðsluaðlögun.
Hæfniskröfur
- Embættis- eða meistarapróf í lögfræði.
- Fullt vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
- Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
- Mjög góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum.
- Þjónustulund, fagmennska og metnaður í starfi.
- Frumkvæði, sveigjanleiki og skipulagshæfni.
- Talnagleggni, vandvirkni og nákvæmni.
- Góð greiningarhæfni og þjónustulund.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert. Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem tilgreind er ástæða umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út sbr. 2. gr. reglna nr.1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Þau sem uppfylla ofangreindar hæfniskröfur og áhuga hafa á starfinu eru hvött til að senda inn umsókn.
Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2025
Nánari upplýsingar veita
Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi hjá Intellecta ([email protected]) í síma 511 1225 og
Eygló Kristjánsdóttir, fjármálastjóri ([email protected]) í síma 512 6600













