Wise ehf.
Wise ehf.

Ráðgjafi í viðskiptalausnum

Wise óskar eftir að ráða metnaðarfullan einstakling í fjölbreytt starf ráðgjafa viðskiptalausna á skrifstofur fyrirtækisins í Reykjavík og á Akureyri.

Leitað er að lausnamiðuðum einstakling sem hefur áhuga á hröðum heimi upplýsingatækninnar. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir framúrskarandi samskiptahæfni og drifkrafti.


Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ráðgjöf til viðskiptavina á Microsoft Business Central
  • Ráðgjöf um notkun kerfa fyrirtækisins
  • Þarfagreiningar, ferlagreiningar og þjónusta
  • Samskipti við viðskiptavini og virk tengslamyndun


Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Góð færni í upplýsingatækni
  • Þekking og áhugi á stafrænum lausnum og nýjungum
  • Reynsla af notkun Microsoft Business Central / Navision
  • Reynsla af bókhaldi og launavinnslu er kostur
  • Reynsla af innkaupum, birgðahaldi, vöruhúsum og tollskýrslugerð er kostur
  • Reynsla og áhugi á Power Platform er kostur
  • Drifkraftur og frumkvæði
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni


Wise er ört vaxandi þekkingarfyrirtæki sem sérhæfir sig í stafrænum lausnum og býður yfirgripsmikla þjónustu fyrir fyrirtæki með það að markmiði að veita viðskiptavinum forskot í rekstri þeirra.

Í boði er skemmtilegt starf hjá spennandi fyrirtæki með miklum framtíðartækifærum.

Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2025. Umsókninni þarf að fylgja starfsferilskrá. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Lea Kristín Guðmundsdóttir (leakristin@intellecta.is) og Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) í síma 511 1225.

Auglýsing birt20. desember 2024
Umsóknarfrestur8. janúar 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.LaunavinnslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft Dynamics 365 Business Central
Starfsgreinar
Starfsmerkingar