

Orkubolti í fjármáladeild
Við leitum af orkubolta í fjármáladeild Orkunnar.
Hjá Orkunni leggjum við mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu, jákvætt viðmót og mikilvægi þess að hafa gaman í vinnunni. Við viljum skapa góðar stundir með fólkinu okkar og leitum nú að öflugum einstaklingi í fjármáladeild sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs með möguleika á áframhaldandi starfi. Gott ef viðkomandi getur hafið störf í kringum 15. maí 2025.
Markmið Orkunnar er að einfalda líf viðskiptavina með snjöllum og þjónustumiðuðum lausnum.
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Umsóknafrestur er til og með 14. mars 2025.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað.
Ef þú ert jákvæður, lausnamiðaður einstaklingur og langar að vera hluti af kraftmiklu teymi, þá viljum við endilega heyra frá þér.
- Reikningagerð.
- Afstemming tekna og bankareikninga.
- Fjárhagsbókanir.
- Meðhöndlun og eftirfylgni reikninga erlendra birgja.
- Afstemmingar.
- Önnur tilfallandi bókhaldsstörf.
- Reynsla af bókhaldsstörfum nauðsynleg, kostur ef viðkomandi er viðurkenndur bókari.
- Þekking á Microsoft Dynamics 365 Business Central er mikill kostur.
- Færni í mannlegum samskiptum og þjónustulund.
- Skipulög og nákvæm vinnubrögð.
- Geta til að vinna sjálfstætt og í teymi.












