wpd Ísland ehf.
wpd Ísland ehf.
wpd Ísland ehf.

Öflugur liðsfélagi óskast við þróun vindorku

wpd leitar að metnaðarfullum og áreiðanlegum liðsfélaga með verkfræði- eða tæknimenntun til að vinna að verkefnaþróun vind- og sólarorkukosta á skrifstofu fyrirtækisins hér á landi ásamt tæknilegri vinnslu.

wpd er þýskt orkufyrirtæki sem er með 24.335 MW í þróun í 31 landi þar sem settar hafa verið upp 2.750 vindmyllur og 6.670 MW af afli í vind- og sólarorku. wpd Ísland ehf. er dótturfyrirtæki wpd GmbH og er með nokkra vindorkukosti í þróun á Íslandi og er með skrifstofur í Garðabæ.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með verkferlum, samskipti við yfirvöld, og aðra hagaðila.  
  • Tæknileg þróunarvinna 
  • Upplýsingaöflun og gagnagreining 
  • Virk þátttaka í þróun verkefna wpd á Íslandi með fjölþjóðlegu teymi 
  • Upplýsingamiðlun 
  • Önnur tilfallandi störf 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Verkfræði- eða tæknimenntun 
  • Reynsla sem að nýtist í starfi t.d.  í orkugeiranum, rafmagnsverkfræði o.s.frv.
  • Þekking á landupplýsingakerfum (GIS) er kostur 
  • Góð samskipta- og skipulagsfærni 
  • Mikill áhugi á endurnýjanlegri orku, vilji til að læra og vaxa á því sviði 
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni í alþjóðlegu umhverfi. 
  • Góð þekking á öllum Microsoft Office forritum.  
  • Gott vald á íslensku og ensku í bæði rituðu og töluðu máli. 
Fríðindi í starfi
  • Fyrirtæki með flatt skipulag þar sem að hugmyndirnar þínar fá tækifæri til að vaxa í alþjóðlegu umhverfi.   
  • Taka þátt í þróun og uppbyggingu vindorku á Íslandi og öðlast reynslu og þekkingu samhliða því. 
Auglýsing birt13. ágúst 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaFramúrskarandi
Staðsetning
Suðurhraun 10, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tæknikunnáttaPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinnsla rannsóknargagna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar