Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.
Norconsult Ísland ehf.

Deildarstjóri á Mannvirkjasviði

Norconsult á íslandi leitar að metnaðarfullum Byggingarverk- eða tæknifræðingi til að leiða mannvirkjasvið innan fyrirtækisins.

Norconsult á Íslandi er partur af alþjóðlegu ráðgjafafyrirtæki og jafnframt stærstu verkfræðistofu Noregs með yfir 6500 starfsmenn þar sem verkefnin spanna frá skipulagi innviða til verkfræði og arkitektúrs. Á Íslandi starfa um 80 manns við verkfræði og arkitektúr í gegnum dótturfélög Norconsult við innlend og erlend verkefni víðs vegar um heiminn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi uppbygging sviðsins
  • Verkefnaöflun og miðlun verkefna
  • Verkefnastjórnun & Teymisstjórnun
  • Þáttaka í útboðum
  • Ráðgjöf í tengslum við hönnun mannvirkja
  • Gerð aðal- og séruppdrátta
  • Gerð útboðsgagna og verklýsinga

Menntunar- og hæfniskröfur

  • > 15 ára reynsla sem hönnuður
  • Háskólamenntun í byggingarverk- eða tæknifræði
  • Löggiltur mannvirkjahönnuður
  • Starfsleyfi byggingarstjóra er kostur
  • Leiðtogahæfni, drifkraftur og metnaður
  • Góð þekking á íslenskum byggingarmarkaði

Fríðindi í starfi

Hreyfistyrkur, samgöngustyrkur, símastyrkur ásamt símaáskrift og heimanettengingu svo eitthvað sé nefnt. Fyrirtækið er að megninu í eigu starfsmanna sinna og býðst öllum starfsmönnum árleg fríðindi til hlutabréfakaupa í fyrirtækinu á sérkjörum. Sveigjanlegur vinnutími í vinalegu umhverfi og í hjarta Kópavogs.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn www.norconsult.is

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir: Þorgeir Hólm Ólafsson, Thorgeir.Holm.Olafsson@norconsult.com

Auglýsing birt13. september 2024
Umsóknarfrestur4. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Hlíðasmári 4, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar