Origo hf.
Origo hf.
Origo hf.

Microsoft ráðgjafi

Origo óskar eftir að ráða til starfa framtakssaman og faglegan söluráðgjafa Microsoft lausna.

Við erum að leita að metnaðarfullum og lausnamiðuðum Microsoft ráðgjafa sem verður hluti af söludeild okkar. Í þessu starfi munt þú vinna náið með bæði nýjum og núverandi viðskiptavinum og veita faglega ráðgjöf varðandi Microsoft vörur, þjónustu og leyfismál.

Viðkomandi mun vinna með fjölbreyttum teymum innan Origo í skýja-, öryggis- og leyfamálum og tilheyrir söludeild. Við leitum að einstaklingi sem drifinn áfram af árangri í sölu og ráðgjöf, forvitinn um þarfir viðskiptavina og kemur auga á tækifæri til umbóta.

Hlutverk og ábyrgð

  • Ábyrgð á bæði nýsölu og viðhaldi viðskiptasambanda tengdum Microsoft skýja- og leyfaráðgjöf
  • Veita faglega ráðgjöf varðandi Microsoft 365 leyfi, leyfisútfærslur og bestu nýtingu
  • Greina þarfir viðskiptavina og mæla með réttri leyfislausn út frá þörfum þeirra

Hæfni & Menntun

  • Frumkvæði og hæfni til að setja sér og ná markmiðum
  • Hæfileiki til að viðhalda yfirsýn og framgangi fjölbreyttra verkefna
  • Þekking og áhugi á Azure og M365 umhverfinu
  • Vottanir og/eða önnur menntun sem nýtist í starfi

Fríðindi í starfi

  • Framúrskarandi vinnuaðstaða
  • Öflug velferðar-og heilsustefna
  • Líkamsræktaraðstaða
  • Sveigjanlegur vinnutími
  • Frábært mötuneyti
  • Styrkir s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur o.fl.

Um Origo

Origo er þekkingar- og nýsköpunarfyrirtæki í upplýsingatækni. Sérhæfing okkar felst í því að skapa og reka örugga innviði og þróa lausnir sem hagræða og einfalda fólki dagleg störf. Betri tækni sem bætir líf fólks. Hjá okkur starfa um 300 manns sem stöðugt þróa lausnir með það markmið að tryggja árangur viðskiptavina okkar, sem eru um þúsund talsins.

Umsóknarfrestur er til og með 25. október.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Nánari upplýsingar veita sérfræðingar á mannauðssviði Origo.

Auglýsing birt14. október 2024
Umsóknarfrestur25. október 2024
Staðsetning
Borgartún 37, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar