Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Akranes: Leitum að öflugum aðila með reynslu af byggingavöru

Við leitum að kröftugum sölumanni með reynslu eða þekkingu á byggingavörum í timbursölu Húsasmiðjunnar á Akranesi.

Um er að ræða spennandi og fjölbreytt starf í lifandi umhverfi. Helstu verkefni í timburafgreiðslu eru sala og þjónusta við viðskiptavini, tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða ásamt tiltekt og afgreiðslu pantana til viðskiptavina og önnur almenn störf í timbursölu.

Við leggjum ríka áhersla á jákvætt hugarfar og að vinna saman að því alla daga að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina. Timbursala hefur verið einn veigamesti þáttur í starfssemi Húsasmiðjunnar í yfir 60 ár.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af byggingavörum og/eða meðhöndlun á þungavörur er mikill kostur
  • Reynsla af tilboðsgerð er mikill kostur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
  • Góð tölvukunnátta
  • Gott vald á íslensku
  • Sterk öryggisvitund
  • Lyftarapróf, J réttindi er kostur
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla
  • Aðgangur að orlofshúsum
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar
Auglýsing birt9. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Esjubraut 47, 300 Akranes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar