Kríta
Kríta
Kríta

Viðskiptastjóri hjá ört vaxandi fjártæknifyrirtæki

Kríta er ört vaxandi fjártæknifyrirtæki sem býður upp á nútímalegar og hraðvirkar fjármögnunarleiðir fyrir minni og meðalstór fyrirtæki, með áherslu á sjálfsafgreiðslu og sjálfvirkni. Við erum samheldið teymi sem vinnur saman að því að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og snjallar fjármögnunarlausnir.

Nú leitum við að drífandi viðskiptastjóra í fullt starf til að stýra söluferlinu frá upphafi til enda, byggja ný viðskiptasambönd og viðhalda þeim, ásamt því að tryggja framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar.

Ef þú ert sjálfstæður, söludrifinn einstaklingur sem hefur reynslu af sölu til fyrirtækja, ert með gott tengslanet og býrð yfir mikilli færni í mannlegum samskiptum, þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Kynna og selja fjármögnunarlausnir til fyrirtækja á Íslandi.
  • Byggja upp, viðhalda og þróa viðskiptasambönd.
  • Kortleggja markaðstækifæri, finna nýja viðskiptavini og þróa sölustefnu.
  • Taka virkan þátt í að móta og þróa söluteymið.
  • Umsjón með samningagerð og viðskiptasamböndum.
  • Taka þátt í stefnumótun og áætlanagerð til að styðja við vöxt félagsins.
  • Innleiðing viðskiptavina í kerfi Kríta og tryggja að þeir nýti lausnir okkar sem best.
  • Vinna náið með stjórnendum og forriturum við að bæta og þróa þjónustuna í takt við þarfir viðskiptavina.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla í sölu eða viðskiptastýringu, helst á sviði fjármála eða fjártækni.
  • Reynsla af þátttöku í vöruþróun og innleiðingu lausna fyrir viðskiptavini.
  • Framúrskarandi samskipta- og söluhæfileikar.
  • Frumkvæði, metnaður og drifkraftur til að ná árangri.
  • Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
  • Háskólanám sem nýtist í starfi.
  • Brennandi áhugi á fjártækni og nýjungum í tæknilausnum.
Fríðindi í starfi
  • Sveigjanlegur vinnutími.
  • Internet og sími greitt.
  • Möguleiki á kauprétti (hlutabréf í Kríta hf)
Auglýsing birt15. október 2024
Umsóknarfrestur31. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Regus Kirkjusandi
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar