Húsasmiðjan
Húsasmiðjan
Húsasmiðjan

Viðskiptastjóri á fagsölusviði

Við leitum að kraftmiklum aðila í starf viðskiptastjóra byggingavara á fagsölusviði Húsasmiðjunnar. Á fagsölusviði starfa öflugir og reynslumiklir einstaklingar sem þjónusta stærstu viðskiptavini Húsasmiðjunnar og aðra aðila í stærri framkvæmdum.

Megin verkefni viðskiptastjóra er ráðgjöf, sala og þjónusta til fagaðila og einstaklinga í góðri samvinnu við annað starfsfólk í fagsöluteyminu. Viðskiptastjóri aflar og viðheldur tengslum og viðskiptum við verktaka og aðra fagaðila, sér um tilboðsgerð og er í samskiptum við birgja.

Við leitum að drífandi einstaklingi með jákvætt hugarfar sem hefur metnað og áhuga á að veita framúrskarandi þjónustu til okkar viðskiptavina. Um er að ræða spennandi starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á að takast á við krefjandi verkefni í sölu á byggingarlausnum til stærstu verktaka landsins.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun s.s. tækni- eða iðnmenntun eða reynsla sem nýtist í starfi er mikill kostur
  • Þekking á byggingavöru og reynsla af sölumennsku er mikill kostur
  • Brennandi áhugi og reynsla af sölu og þjónustu
  • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Gott vald á íslensku
  • Almenn góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Heilsuefling, s.s. heilsufarsskoðun, bólusetning, aðgangur að sálfræðiþjónustu, heilsueflandi fræðsla.
  • Aðgangur að orlofshúsum.
  • Ýmsir styrkir, s.s. íþróttastyrkur, samgöngustyrkur og fræðslustyrkur.
  • Afsláttarkjör í verslunum okkar.
Auglýsing birt10. október 2024
Umsóknarfrestur27. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Kjalarvogur 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.ViðskiptasamböndPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar