GÞ skartgripir & úr ehf
GÞ skartgripir & úr ehf
GÞ skartgripir & úr ehf

GÞ skartgripir og úr - Fullt starf við afgreiðslu

Við leitum að hressum og jákvæðum starfsmanni sem hefur áhuga á sölumennsku á fallegu skarti og úrum ásamt því að vera þjónustulundaður og lipur í samskiptum við viðskiptavini í verslunum okkar í Bankastræti.

Um er að ræða sölu og afgreiðslustarf í verslun okkar GÞ skartgripir og úr, Bankastræti 9 ásamt tilfallandi afleysingum í verslun okkar GullBúðin Bankastræti 6. Starfið felst í framúrskarandi þjónustu til viðskiptavina okkar sem eru innlendir ásamt erlendum ferðamönnum. Við vinnum öll sem heild og göngum í þau verkefni sem þarf hverju sinni.

Helstu verkefni

  • Almenn afgreiðslustörf
  • Tiltekt pantana fyrir vefverslun
  • Taka upp vörur, verðmerkja ásamt uppröðun og framsetningu í verslun
  • Setja nýjar vörur inn á vefverslun
  • Halda verslun snyrtilegri
  • Ásamt öðrum tilfallandi störfum tengdri versluninni

Hæfniskröfur

  • Rík þjónustulund
  • Áhugi á mannlegum samskiptum
  • Jákvæðni og gott viðmót
  • Stundvísi og áræðni
  • Heiðarleiki og hreint sakavottorð
  • Enskukunnátta
  • Íslenskukunnátta
  • 20 ára eða eldri
  • Áhugi á markaðsmálum og samfélagsmiðlum mikill kostur en ekki skilyrði
  • Reynsla af afgreiðslu og sölustörfum mikill kostur en ekki skilyrði

Dagvinna 10-18 virka daga eða eftir nánara samkomulagi með tilliti til styttingar vinnuviku.

Helgarvinna Laugardagar 1-2dagar í mánuði ( ca önnur til þriðja hver helgi )

Í desember er lengri opnunartími nokkra daga fyrir jól þar sem við skiptum okkur niður á opnunartímann

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst!

Við rekum 2 verslanir í Bankastræti, GÞ skartgripi og úr Bankastræti 9 og GullBúðin Bankastræti 6.

Fríðindi í starfi

Getum sótt um frítt bílastæði fyrir starfsmenn í nálægu bílastæðahúsi. ( tekur stundum tíma að losna )

Góður starfsmannaafsláttur af vörum

Auglýsing birt14. október 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Bankastræti 9, 101 Reykjavík
Bankastræti 6, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.EnskaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.ÍslenskaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar