Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn á Akureyri: Starfsfólk í leikskóla

Leikskólinn Naustatjörn óskar eftir að ráða starfsfólk í 80% til 100% ótímabundnar stöður. Um er að ræða afleysingastöður, þ.e. starfsfólk fer á milli deilda í sínu starfi en er ekki á sömu deild alla daga. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem allra fyrst.

Í Naustatjörn er lögð áhersla á að nemendur fái að kljást við margvísleg verkefni í gegnum sjálfssprottinn leik og að þeir læri af eigin reynslu, virkni og áhuga.

Áhersluþættir skólans eru leikurinn og Jákvæður agi. Aðrir áhersluþættir eru náttúra og umhverfi og er skólinn handhafi Grænfánans.

Einkunnarorð skólans eru Félagsfærni - Endurnýting - Sjálfstæði - Tillitssemi – Athvarf.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://naustatjorn.is

Næsti yfirmaður starfsmanns er deildarstjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barna.
  • Fylgjast vel með velferð barna og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Þátttaka í gerð skólanámskrár og mati á starfsemi leikskólans undir stjórn deildastjóra og/eða skólastjóra.
  • Þátttaka í faglegu starfi skólans undir stjórn deildarstjóra og/eða skólastjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
  • Sitja fundi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum.
  • Að eiga auðvelt með mannleg samskipti og vera tilbún/n að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Sveigjanleiki í starfi og vera tilbúin/n að ganga í ýmis störf.
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur.
  • Gott vald á íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Auglýsing birt13. maí 2025
Umsóknarfrestur26. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hólmatún 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar