Akureyri
Akureyri
Akureyri

Leikskólinn Kiðagil: Leikskólakennari

Leikskólinn Kiðagil óskar eftir að ráða leikskólakennara eða starfsmann með aðra háskólamenntun (B.s. B.a. eða B.ed) sem nýtist í starfi. Um er að ræða ótímabundna 100% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í ágúst 2025.

Í Kiðagili er lögð áhersla á Leikskólalæsi á öllum deildum þar sem leikið er með bókstafi, rím og hljóð. Skólinn er umhverfisvænn og starfar eftir SMT-styðjandi skólafærni

Einkunnarorð skólans eru „fagmennska, virðing, leikur og læsi“.

Ertu hugmyndaríkur, lausnamiðaður, jákvæður og duglegur einstaklingur með dygga þjónustulund og vilt vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://kida.is

Ert þú tilbúin til að vera með okkur í liði og leggja þitt af mörkum?

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinna að uppeldi og menntun barnanna. Fylgist vel með velferð þeirra og hlúa að þeim andlega og líkamlega í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins svo að þau fái notið sín sem einstaklingar.
  • Taka þátt í gerð skólanámskrár, útfyllingu þroskamats, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs deildarinnar undir stjórn deildarstjóra.
  • Vinna í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna. Sitja fundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Vinna eftir uppeldisstefnu SMT.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun (B.s. B.a. eða B.ed) sem nýtist í starfi leikskólans.
  • Reynsla af starfi í leikskóla er kostur.
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum, sveigjanlegum og mjög jákvæðum einstaklingum.
  • Reglusemi og samviskusemi.
  • Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
  • Viðkomandi þarf að vera tilbúin til að leita leiða og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
  • Þekking á SMT/PMTO er kostur
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt5. maí 2025
Umsóknarfrestur16. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Kiðagil 9, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar