Akureyri
Akureyri
Akureyri

Glerárskóli: Starfsfólk í íþróttahúsi með stuðning

Í Glerárskóla eru lausar tvær 70% stöður starfsfólks í íþróttahúsi með stuðning. Eina stöðu fyrir karlmann og eina stöðu fyrir kvenmann. Ráðið verður í störfin frá 14. ágúst 2025 (eða eftir samkomulagi) í eitt ár með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Möguleiki er á starfi í frístund til viðbótar við starfið.

Glerárskóli vinnur samkvæmt hugmyndafræði jákvæðs aga og Olweusar. Skólinn er Grænfánaskóli og stundar úti- og grenndarkennslu auk þess að leggja áherslu á læsi, leiðsagnarnám og teymisvinnu. Glerárskóli Erasmus+ vottaður skóli.

Glerárskóli er hnetulaus skóli.

Stoðþjónusta Glerárskóla er gríðarlega öflug og fagleg en það styrkir allt skólastarf í þágu nemenda.

Einkunnarorð skólans eru HUGUR-HÖND-HEILBRIGÐI

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn www.glerarskoli.is

Leitað er að hugmyndaríkum einstaklingum sem eiga auðvelt með að sýna sveigjanleika, hafa frumkvæði, sem hafa mikinn metnað, eiga auðvelt með öll samskipti og sem leggja áherslu á vellíðan og árangur nemenda í samstarfi við aðra starfsmenn og stjórnendur skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Gæsla og stuðningur við nemendur í íþróttamannvirki og búningsklefum íþróttamannvirkis
  • Að fylgjast með samskiptum nemenda
  • Að styðja við nemendur í íþróttatímum undir verkstjórn íþróttakennara
  • Að sinna minniháttar meiðslum og óhöppum nemenda þegar þess þarf
  • Að leiðbeina nemendum um framkomu og hegðun samkvæmt uppeldis- og agastefnu skólans
  • Að sitja fag-, samstarfs- og foreldrafundi eftir því sem við á
  • Að fylgja nemanda/nemendum í dags- og vettvangsferðir
  • Fylgd og eftirlit í styttri ferðum vegna skólastarfs
  • Umsjón og gæsla í matartíma
  • Frímínútnagæsla og almennt eftirlit með nemendum í skólahúsnæði
  • Önnur störf sem kennari og/eða stjórnandi felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Áhugi á að starfa með börnum er skilyrði
  • Starfsreynsla innan skólakerfis er æskileg
  • Að geta unnið sjálfstætt og sýnt frumkvæði
  • Sveigjanleiki í starfi, stundvísi, jákvæðni og færni í samskiptum
  • Kunnátta í skyndihjálp er skilyrði
  • Samviskusemi og reglusemi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hæfni til að fylgja fyrirframgefnu skipulagi
  • Áhugi á að taka þátt í þróun skólastarfs og að taka að sér fjölbreytt verkefni
  • Ýmis konar hæfileikar, menntun og/eða þekking sem getur auðgað skólastarfið
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samræmist starfinu
Auglýsing birt13. maí 2025
Umsóknarfrestur26. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar