VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Jarðtæknihönnun og -ráðgjöf

Vilt þú stuðla að öruggum undirstöðum og stöðugleika? Við leitum að jarðtækniverkfræðingi, eða sérfræðingi með sambærilega menntun, til starfa við jarðtæknilega hönnun og ráðgjöf.

Um starfið

Sem sérfræðingur við á fagsviði jarðtækni munt þú m.a. vinna við:

  • Jarðtæknilega hönnun: Hönnun á undirstöðum fjölbreyttra mannvirkja sem og jarðskriðs- og hrunvarnaraðgerða s.s. varnargarða, stoðveggja og stálþilja.
  • Jarðtæknirannsóknir: Úrvinnsla og skýrslugerð vegna jarðtæknirannsókna fyrir ólíkar jarðvegsaðstæður.
  • Stöðugleikaútreikninga: Útreikningar á stöðugleika m.t.t. jarðlagaeiginleika, grunnvatnsstöðu, skriðuhættu, jarðhræringa og álags.
  • Faglegt samstarf: Fagleg samskipti og teymisvinna með hönnuðum innan fagsviðs og með hönnuðum annarra fagsviða.
  • Gerð útboðsgagna: Gerð verklýsinga og annarra gagna fyrir útboð á jarðvinnu.
  • Önnur skýrslugerð: Ýmsar greiningar og gagnaúrvinnsla á fagsviði jarðtækni.
  • Framkvæmdaeftirlit: Eftirfylgni á byggingartíma og almennt eftirlit með jarðtækniframkvæmdum.

Hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi með eftirfarandi eiginleika og færni:

  • Menntun: Menntun á sviði jarðtækniverkfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla: A.m.k. 3ja ára reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði.
  • Hugbúnaðarþekking: Góð þekking Autocad og GeoSuite er kostur.
  • Samskiptahæfni: Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymi, jákvæðni og góð samskiptafærni.
  • Tungumálakunnátta: Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli. Kunnátta í a.m.k. einu skandinavísku tungumáli er kostur.

Hvað bjóðum við

Við leggjum áherslu á að skapa jákvætt, sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til persónulegrar og faglegrar þróunar í starfi. Meðal þess sem við bjóðum er:

  • Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi.
  • Tækifæri til að vinna að mikilvægum og áhrifamiklum uppbyggingarverkefnum.
  • Sveigjanleiki í vinnu og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
  • Líflegt félagsstarf.

Kynntu þér starfið nánar á www.vso.is/starfsumsokn/

Auglýsing birt20. ágúst 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Borgartún 20, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar