Hjúkrunardeildarstjóri á legudeild geðrofssjúkdóma
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra hjúkrunar á legudeild geðrofssjúkdóma.
Leitað er eftir kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða árangursríka þjónustu við sjúklinga, stuðla að aukinni notendamiðaðri nálgun, umbótastarfi, öryggismálum og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk. Hjúkrunardeildarstjóri er yfirmaður hjúkrunar á deildinni sem stýrir daglegum rekstri og er leiðandi um fagleg málefni innan deildarinnar. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing, yfirlækni deildar og aðra stjórnendur og samstarfsfólk í geðþjónustu.
Legudeild geðrofssjúkdóma er sextán rúma deild og er meðferðarnálgunin sambland af meðferð við bráðu geðrofi og endurhæfingu. Mikil áhersla er lögð á þverfaglega vinnu teymisaðila, eflingu hjúkrunar og notendamiðaða nálgun.
Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. júní 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í geðþjónustu.