

Hefur þú áhuga á fyrirtækjarekstri og endurskoðun?
KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa um 250 einstaklingar á 13 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.
Hefur þú áhuga á fyrirtækjarekstri og endurskoðun?
Við leitum nú að drífandi einstaklingum til að bætast í okkar frábæra hóp á endurskoðunarsviði. Umsækjendur þurfa að vera í stakk búnir að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni undir handleiðslu löggiltra endurskoðenda. Starfsfólk fær mikla innsýn inn í rekstur fyrirtækja, nýtingu stafrænna lausna og ýmis ráðgjafartengd verkefni.
Á heimasíðu okkar HÉR getur þú betur kynnt þér heim endurskoðenda og heyrt hvað starfsfólkinu okkar finnst um starfið og vinnustaðinn.
Ef að þú ert verðandi endurskoðandi og vilt starfa í frammistöðudrifnu og skemmtilegu starfsumhverfi þá viljum við endilega heyra frá þér.
Dæmi um verkefni og ábyrgð:
- Þjónusta við fyrirtæki og opinbera aðila á sviði endurskoðunar.
- Staðfestingarvinna á sviði sjálfbærni.
- Reikningsskil og gerð ársreikninga.
- Skattskil og tengd mál.
- Ýmis ráðgjafartengd verkefni.
- Verkefni tengd gæðamálum og faglegu starfi KPMG.
- Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni.
Hæfniskröfur:
- Brennandi áhugi á viðskiptum og að kynnast rekstri fyrirtækja.
- Grunnnám í viðskiptafræði eða öðru námi sem nýtist.
- Stefnir á, ert að vinna að eða hefur lokið meistaranámi í reikningsskilum og endurskoðum (M.Acc gráðu).
- Reynsla af bókhaldi, reikningsskilum eða öðru sem nýtist í starfi kostur.
- Góð tölvufærni, greiningarhæfni og góð þekking á Excel.
- Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Frumkvæði, nákvæmni og öguð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.
Í samræmi við markmið okkar í jafnréttismálum hvetjum við öll til að sækja um óháð kyni.
Að vinna hjá KPMG
Við hjá KPMG leggjum mikla áherslu á fjölbreytta og lifandi fyrirtækjamenningu þar sem starfsfólk nýtur sín faglega og félagslega.
Sem leiðandi þekkingarfyrirtæki leggjum við sérstaka áherslu á öfluga starfsþróun og fræðslu starfsfólks, stuðningsríkt og hvetjandi starfsumhverfi og öfluga samvinnu til þess að hámarka virði fyrir viðskiptavini og samfélagið.
Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum hjá KPMG á Íslandi og erlendis.
- Möguleikar á að þróast í starfi.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Heilsueflandi vinnustaður og aðgangur að líkamsræktarstyrk og samgöngustyrk.
- 4 tímar á ári hjá sálfræðingi eða öðrum ráðgjöfum sem styðja við andlega heilsu í gegnum Kara velferðartorg.
- Sérstök stuðningsúrræði fyrir verðandi og nýbakaða foreldra, svosem launað leyfi í lok meðgöngu, orlofssöfnun í fæðingarorlofi, möguleika á hlutastarfi sem aðlögun eftir fæðingarorlof og sérstakur fæðingarorlofsstyrkur.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 22. apríl 2025.
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á heimasíðu KPMG (sækja um hér til hliðar). Unnið er úr umsóknum jafnóðum og því hvetjum við áhugasöm um að sækja um sem fyrst. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum á [email protected]













