![Arnarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/71512c11-f976-411d-b31c-cb785906a109.png?w=256&q=75&auto=format)
![Arnarskóli](https://alfredprod.imgix.net/cover/ebbd3574-3cc5-4862-a4f3-9230637af2aa.png?w=1200&q=75&auto=format)
Háskólamenntaðir óskast til starfa í sérskóla
Tenglar - utanumhald og ábyrgð á nemendum með þroskafrávik
Við leitum að umhyggjusömu og metnaðarfullu starfsfólki til að vinna við þjálfun og kennslu barna með einhverfu og önnur þroskafrávik.
Tenglar í Arnarskóla halda utan um nám og leik eins nemanda í samstarfi við atferlisfræðing og kennara. Unnið er í teymi 5-7 nemenda og starfsfólk teymisins þekkir alla nemendur þess vel.
Nýjir tenglar fá kennslu í aðferðum sem notaðar eru, og allir tenglar fá reglulega fundi með atferlisfræðing.
Arnarskóli er sérskóli sem sinnir börnum með einhverfu og önnur þroskafrávik. Við leggjum ríka áherslu á að sníða nám og frístundastarf að þörfum hvers og eins nemanda og fjölskyldu hans.
Okkur er umhugað að nemendur okkar upplifi öryggi og samfellu í námi og leik, og því bjóðum við upp á þjónustu allt árið. Unnið er eftir aðferðum hagnýtrar atferlisgreiningar.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í ágúst.
- Ábyrgð á umgjörð náms, einstaklingsáætlunar og frístundastarfs umsjónarnemanda í samvinnu við atferlisfræðing og umsjónarkennara
- Skráning og framvinda náms
- Samskipti við foreldra og aðra fagaðila
- Almenn kennsla og frístundastarf með nemendum
- Menntun sem nýtist í starfi (t.d. Þroskaþjálfar, sálfræði menntaðir, sérkennarar, tómstundafræðingar)
- Góð samskiptafærni
- Frumkvæði
- Sveigjanleiki
- Brennandi áhugi á vinnu með börnum
- Góð íslenskukunnátta er nauðsynleg
- Morgunmatur, hádegismatur og seinnipartshressing
![Íslenska](https://alfredflags.imgix.net/is.png?w=60&h=60)
![NPA miðstöðin](https://alfredprod.imgix.net/logo/a58f673d-1277-4970-8243-fbf9775b2ada.png?w=256&q=75&auto=format)
![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Borgarbyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/018b4522-e454-4eee-8591-1ad643ca44b6.png?w=256&q=75&auto=format)
![Árbæjarskóli](https://alfredprod.imgix.net/logo/37a4b9fd-7ccf-4398-9e88-a8aa056c90be.png?w=256&q=75&auto=format)
![Fjarðabyggð](https://alfredprod.imgix.net/logo/ba86577f-f1cf-420b-b443-3f1678b3ee47.png?w=256&q=75&auto=format)
![Reykhólahreppur](https://alfredprod.imgix.net/logo/is-a5837fe8-4c70-45a9-b3dd-044a0ef658b5.png?w=256&q=75&auto=format)
![Hofsstaðaskóli Garðabæ](https://alfredprod.imgix.net/logo/39dabba6-1009-4327-875e-8d51fd839373.png?w=256&q=75&auto=format)
![Siðmennt](https://alfredprod.imgix.net/logo/720620c7-3c86-4e29-947a-c30e761203a3.png?w=256&q=75&auto=format)
![Akureyri](https://alfredprod.imgix.net/logo/4c7cd6c3-5038-4744-b963-39bac8f37b6c.png?w=256&q=75&auto=format)
![Leikskólinn Blásalir](https://alfredprod.imgix.net/logo/8e193b41-c90b-4aa4-bf96-656c711006ef.png?w=256&q=75&auto=format)
![Kópavogsbær](https://alfredprod.imgix.net/logo/41a293e1-fc6c-41cb-80b7-ba4ed6a08a79.png?w=256&q=75&auto=format)
![Akureyri](https://alfredprod.imgix.net/logo/4c7cd6c3-5038-4744-b963-39bac8f37b6c.png?w=256&q=75&auto=format)