Vegagerðin
Vegagerðin
Vegagerðin

Forstöðumaður stoðdeildar

Vegagerðin auglýsir eftir öflugum einstaklingi til að taka við starfi forstöðumanns stoðdeildar í Garðabæ. Á stoðdeild vinna 11 starfsmenn og sinnir deildin þjónustu við allar einingar Vegagerðarinnar á sínu starfssviði.

Helstu verkefni og ábyrgð

Forstöðumaður veitir stoðdeild forystu, leiðir faglega starfsemi deildarinnar og tryggir að hún sé í samræmi við stefnu. Forstöðumaður leiðir umbótaverkefni, er ábyrgur fyrir áætlanagerð stoðdeildar og byggir upp gott starfsumhverfi. 

Verkefni stoðdeildar eru m.a.

  • Umsjón með útboðskerfi fyrir framkvæmdir og þjónustu
  • Umsjón útboða og samræming útboðsgagna fyrir framkvæmdir og þjónustu
  • Umsjón með uppfærslu verklags og útgáfu vinnugagna í vegagerð í nýframkvæmdum og viðhaldi 
  • Umsjón með uppfærslu verklags og útgáfu vinnugagna um framleiðslu steinefna og umsjón með skráningu á niðurstöðum rannsókna
  • Jarðefna- og jarðfræðirannsóknir vegna vegagerðar, brúargerðar, jarðganga og hafnargerðar  
  • Efnisleit og námurannsóknir, jarðvegs- og berggrunnskannanir  
  • Eftirlit með námumálum, þ.m.t. gagnagrunnum um námur, jarðlög og efnisrannsóknir 
  • Rekstur rannsóknastofu
  • Gagnasöfnun, mælingar og rekstur mælingatækja, fallóð, boranir, veggreinir o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi ásamt meistaraprófi
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Forystuhæfni, frumkvæði og faglegur metnaður 
  • Mjög góð hæfni til ákvarðanatöku, eftirfylgni og verkefnastýringar
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
Auglýsing birt28. nóvember 2023
Umsóknarfrestur11. desember 2023
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurhraun 3, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar