Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar
Velferðarsvið Mosfellsbæjar - Búsetukjarnar

Forstöðumaður í búsetu hjá Mosfellsbæ

Mosfellsbær óskar eftir að ráða forstöðumann til að leiða starf tveggja búsetukjarna. Viðkomandi þarf að búa yfir framsækni og lausnamiðuðu hugarfari. Starfið er tímabundið með möguleika á fastráðningu.

Forstöðumaður ber ábyrgð á rekstri búsetukjarnana, ráðningum starfsfólks og þjálfun þess, innra skipulagi, vaktaskýrslugerð o.fl.

Forstöðumaður vinnur eftir lögum og reglugerðum í þjónustu við fatlað fólk og stefnu Mosfellsbæjar í málaflokknum. Búsetukjarninn veitir íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggur áherslu á að auka víðsýni þeirra með félagslegri virkni. Starfsmenn vinna eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar sem og þjónustu- og starfsáætlunum.
Forstöðumaður leggur sig fram við að skapa öfluga liðsheild sem stuðlar að samræmdum einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum til aukningar velferðar fyrir íbúana.

Gert er ráð fyrir að forstöðumaður geti hafið störf í lok febrúar eða eftir samkomulagi.

Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsfólks í daglegu lífi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstraráætlunargerð og utanumhald um rekstur kjarnanna
  • Launavinnsla
  • Skipuleggja faglegt starf
  • Stýra innra starfi og bera ábyrgð á þeirri þjónustu sem íbúar fá
  • Ber ábyrgð á að starfsmenn vinni eftir hugmyndafræði Mosfellsbæjar í málaflokki fatlaðs fólks, stuðli að valdeflingu íbúa og veiti þeim góða þjónustu í samræmi við þau lög, reglur og alþjóðlegar skuldbindingar sem um starfssemina gilda og kröfulýsing kjarnana segir til um
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af og metnaður fyrir starfi með fötluðu fólki
  • Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar
  • Farsæl reynsla af  starfsmannahaldi
  • Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs, þjónandi leiðsagnar og valdeflingar
  • Reynsla af vaktavinnukerfum eins og t.d. Vinnustund eða MTP er æskileg
  • Reynsla af vinnu með bókhaldskerfi eins og t.d Nav, Sap og fl.
  • Reynsla af vinnu í t.d Alfreð, 50 skills eða sambærilegum ráðningarkerfum er kostur
  • Reynsla af innleiðingu nýrra verkefna er kostur
  • Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Mikil hæfni í samskiptum og leiðtogahæfileikar
  • Mjög góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt6. desember 2024
Umsóknarfrestur22. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Dynamics NAVPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.RáðningarPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.Vaktaskipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar