Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Þroskaþjálfi - Leikskólinn Norðurberg

Leikskólinn Norðurberg óskar eftir að ráða þroskaþjálfa í 100% starf.

Leikskólinn Norðurberg er 6 deilda leikskóli í Norðurbæ Hafnarfjarðar. Þar dvelja að meðaltali 101 börn og um 32 starfsmenn. Áherslur leikskólans eru: umhverfismennt og útikennsla (Grænfána leikskóli), jákvæð samskipti (Að næra hjartað/PMT), hollusta og hreyfing, vináttuleikskóli Barnaheilla, snemmtæk íhlutun í málþroska ungra barna og innleiðing á læsi og stærðfræði.

Á Norðurbergi er starfsfólk með mikinn metnað fyrir starfi sínu og starfsánægja og starfsandi er góður.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem hefur metnað og áhuga fyrir starfinu.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna með sérþarfir
  • Gerir áætlanir, sinnir þjálfun, leiðsögn og stuðningi barna með sérþarfir
  • Skipuleggur og heldur utan um sérkennslu í nánu samstarfi við sérkennslustjóra
  • Er í samstarf við foreldra og fagaðila um velferð barnsins
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun á sviði þroskaþjálfunar og starfsleyfi (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Góð íslenskukunnátta

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Borg Harðardóttir leikskólastjóri, annaborg@hafnarfjordur.is eða í síma 664-5851 og Gunnhildur Grímsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, gunnhildur.gr@hafnarfjordur.is í síma 555-3484.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Samband íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands.

Umsóknarfrestur er til og með 19. desember 2024.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt6. desember 2024
Umsóknarfrestur19. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurvangur 15, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar