Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Lækjarskóli auglýsir eftir þroskaþjálfa í fullt starf
Lækjarskóli á sér sögu allt aftur til ársins 1877 og er staðsettur í fallegu og grónu umhverfi við Lækinn í Hafnarfirði. Reist var ný skólabygging, björt og rúmgóð, og tekin í notkun árið 2002. Hér er meðal annars að finna bæði sundlaug og íþróttahús. Nemendur eru tæplega 500 talsins, þar af tæplega 140 á unglingastigi. Allir nemendur frá 5. -10. bekk hafa eigin spjaldtölvu til afnota.
Einkunnarorð Lækjarskóla eru ábyrgð, virðing og öryggi, og endurspeglast allt skólastarfið í þessum orðum. Unnið er samkvæmt SMT-skólafærni sem þýðir að áhersla er lögð á að nálgast nemendur á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæðan skólabrag.
Lækjarskóli hefur verið í innleiðingu á Universal Design for Learning (UDL). UDL er aðferðafræði sem er byggð á rannsóknum David Rose (Boston Harvard,1984). UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám og er tilgangurinn að útrýma hindrunum sem standa í vegi fyrir árangri nemenda.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinna með nemendum með þroskafrávik.
- Gera áætlanir, sinna þjálfun, vinna með félagsfærni, aðlaga námsefni og námsaðstæður í samvinnu við kennara og deildarstjóra.
- Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
- Vinna með nemendum í sérdeild og almennu skólaumhverfi.
- Vinna að þróun skólastarfs ásamt öðrum starfsmönnum í skólanum.
- Vinna að gerð einstaklingsnámskrár í samstarfi við kennara og deildarstjóra og fylgja henni eftir.
- Vinna að gerð sjónræns skipulags fyrir nemendur.
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfi til að nota starfsheitið þroskaþjálfi (leyfisbréf fylgi umsókn).
- Þekkingu og reynslu af vinnu með nemendum með þroskahömlun kostur.
- Góð íslenskukunnátta.
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Faglegur metnaður og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Ef þetta er eitthvað sem vekur áhuga þinn ekki hika við að hafa samband við okkur í Lækjarskóla.
Hafðu samband við , Örnu B. Arnardóttur skólastjóra í síma 6645865, arna@laekjarskoli.is eða Margréti Ósk Gunnarsdóttur deildarstjóri stoðþjónustu, margreto@laekjarskoli.is .
Umsóknarfrestur er til og með 24. desember 2024.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara.
Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.