Húnabyggð
Húnabyggð

Umsjónarkennari á mið- eða unglingastigi í Húnaskóla

Um er að ræða stöðu umsjónarkennara á unglingastigi, 100% staða frá 1. janúar til 31. maí 2025 vegna afleysingar. Kennslugreinar á mið- og unglingastigi: enska, íslenska og samfélagsfræði. Húnaskóli er nýr framsækinn grunnskóli í mótun með 180 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn leitast við að koma til móts við þarfir nemenda sinna á persónulegan og einstaklingsmiðaðan hátt. Lögð er áhersla á teymiskennslu. Gott samstarf er við nærsamfélagið svo sem íþróttafélögin og tónlistarskólann.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með nemendum á unglingastigi og faggreinakennsla með áherslu á íslensku, ensku og samfélagsfræði. Foreldrasamstarf og önnur fagleg störf innan skólans sem starfsfólk vinnur saman í teymum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur verða að hafa leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla í grunnskóla æskileg. Gerð er krafa um góða íslenskukunnáttu. Leitað er eftir einstaklingum sem hafa góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og teymiskennslu, samþættingu námsgreina og þemabundin verkefni. Reynsla af samkennslu árganga og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvæg. 

Farið er eftir Reglugerð um hæfniramma með viðmiðum fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda við leik-, grunn- og framhaldsskóla.

 

Auglýsing birt11. desember 2024
Umsóknarfrestur26. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Húnabraut 2a
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennsla
Starfsgreinar
Starfsmerkingar