Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel
Leikskólinn Garðasel

Tímbundið starf í leikskólanum Garðaseli

Heilsuleikskólinn Garðasel á Akranesi auglýsir eftir starfsmanni í 80% starf frá 1. janúar til 4. júlí 2025. Vinnutími er fjóra daga vikunnar og er frídagurinn breytilegur eftir vikum.

Garðasel er Heilsuleikskóli og leggur áherslu á hreyfingu, heilsu og gæði í samskiptum. Við leitum að áhugasömum starfsmanni sem er tilbúinn að vinna með stórum og öflugum starfsmannahópi af áhuga og jákvæðni. Í leikskólanum eru um 160 börn á sjö deildum.

Leikskólinn er í nýju og glæsilegu húsnæði þar sem m.a. starfsaðstaða, hljóðvist og lýsing er til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Vinna að uppeldi og menntun barna samkvæmt starfslýsingu leiðbeinenda eða leikskólakennara. Starfið er unnið í samvinnu við leikskólakennara, deildarstjóra og skólastjórnendur.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Uppeldismenntun kostur
  • Áhugi, reynsla og góð hæfni í starfi með börnum
  • Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði
  • 18 ára og eldri
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt11. desember 2024
Umsóknarfrestur20. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Asparskógar 25
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.Tóbakslaus
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar