Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Forstöðumaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun

Forstöðumaður óskast til starfa í búsetukjarnann að Arnarhrauni.

Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman forstöðumann í sértækt búsetuúrræði fatlaðs fólks. Um er að ræða 100% starf. Óskað er eftir drífandi einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfileika og áhuga á málefnum fatlaðs fólks. Áhersla er lögð á réttindi fatlaðs fólks, einstaklingsmiðaða aðstoð og sjálfstætt líf. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Faglegt starf og þjónusta við íbúa
  • Daglegur rekstur starfsstöðvar, stjórnun og starfsmannamál
  • Fjármál, innkaup og eftirliti með þeim
  • Gerð áætlana fyrir starfsstöðina s.s. rekstrar- og fjárhagsáætlunar
  • Meðferð gagna og upplýsinga
  • Að þjónusta og starfsemi sé í samræmi við lög, reglugerðir, samning sameinuðu þjóðanna, stefnur og samþykkta verkferla
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þroskaþjálfamenntun og starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða önnur sambærileg háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Meistarapróf, eða viðamikil reynsla af stjórnun
  • Reynsla af starfi með fötluðu fólki, a.m.k. 5 ára starfsreynsla æskileg
  • Leiðtogafærni og geta til að aðlagast breyttum aðstæðum
  • Þekking á lögum sem snúa að málaflokknum
  • Góð tölvukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku
  • Mjög góð samskiptahæfni, samstarfshæfni og þjónustulund
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfileikar

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið eru veittar af Hrönn Hilmarsdóttur, [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 27. október 2025.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt14. október 2025
Umsóknarfrestur27. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar