Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Íþróttakennsla – Engidalsskóli

Engidalsskóli óskar eftir íþróttakennara í 80-100% starf, tímabundin afleysing.

Engidalsskóli var stofnaður árið 1978, skólinn var sameinaður Víðistaðaskóla fyrir rúmum áratug en endurheimti sjálfstæði sitt aftur haustið 2020 og er mikið uppbyggingarstarf í gangi. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, í vetur eru nemendur um 220.

Áhersla er lögð á fjölbreytta kennsluhætti, teymisvinnu og velferð og vellíðan nemenda og starfsmanna. Skólinn er heilsueflandi og flaggar grænfána og er að taka fyrstu skrefin í leiðsagnarnámi. Skólinn starfar samkvæmt Uppeldi til ábyrgðar. Við leggjum mikla áherslu á lestranám og er lestur eina heimanám nemenda. Við skólann er einstaklega skemmtileg skólalóð sem býður upp á fjölbreytta möguleika til leikja og útikennslu. Góður starfsandi og jákvæð samskipti eru meðal allra sem í skólanum starfa.Við leitum að fólki sem vill taka þátt í að byggja upp öflugt skólastarf.

Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast kennslu í íþróttum og sundi í skólanum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans um uppeldi til ábyrgðar
  • Sýnir gott fordæmi, er fyrirmynd í vinsamlegum samskiptum og vinnur að góðum skólabrag
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Haldgóð þekking á kennslufræði íþrótta og reynsla af kennslu skólaíþrótta
  • Fullgild réttindi til sundkennslu
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri, [email protected] í síma 5554433

Launakjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ.

Umsóknarfrestur er til og með 17. október 2025.

Um er að ræða tímabunda ráðningu frá janúar 2026 út skólaárið.

Greinargóð ferilsskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt6. október 2025
Umsóknarfrestur17. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar