Leikskólinn Nóaborg
Leikskólinn Nóaborg

Stuðningsfulltrúi óskast í leikskólann Nóaborg - 36 stunda vinnuvika

Sérkennari/stuðningsfulltrúi með mjög góða íslenskukunnáttu óskast í leikskólann Nóaborg. Um fullt starf er að ræða og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Leikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholtinu, rétt ofan við Hlemm. Húsnæðið hefur verið endurnýjað sem og garðurinn og er góð aðstaða bæði fyrir börn og starfsmenn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Margrét Ólafsdóttir, leikskólastjóri í síma 693-9830 eða með tölvupósti á [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgja eftir barni sem þarf sérstuðning
  • Vinna að gerð einstaklingsáætlunar í samráði við sérkennslustjóra
  • Sitja teymisfundi
  • Vera í góðu samstarfi við foreldra
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þroskaþjálfi, leikskólasérkennari eða önnur menntun sem nýtist í starfi
  • Mjög góð íslenskukunnátta 
  • Góð samskiptafærni
  • Frumkvæði og metnaður
Fríðindi í starfi
  • Sundkort
  • Samgöngustyrkur
  • Afsláttur af leikskólagjöldum í Reykjavík
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn eldri en eins árs
  • Menningarkort
  • Heilsustyrkur
  • 36 stunda vinnuvika
  • Frítt fæði
Auglýsing birt6. október 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Stangarholt 11, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar