Sólheimar ses
Sólheimar ses
Sólheimar ses

Stuðningsfulltrúi í félagsþjónustu.

Félagsþjónusta Sólheima óskar eftir að ráða tvo stuðningsfulltrúa til starfa sem fyrst, til að aðstoða þjónustunotendur í sjálfstæðri búsetu.

Um er að ræða tvær 100% stöður, eina stöðu í dagvinnu virka daga og aðra í vaktavinnu, þar sem unnið er á 12 tíma vöktum í sex daga vinnulotum í senn með átta daga fríi á milli.

Æskilegt er að viðkomandi starfsmaður hafi reynslu af störfum með fötluðu fólki, sé jákvæður, hafi ríka þjónustulund og tali íslensku. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Bárunnar stéttarfélags við Sólheima ses.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita íbúum aðstoð við athafnir daglegs lífs
  • Dagleg umsjón með heimilishaldi, þrifum og öðrum tilfallandi verkefnum
  • Hvetja íbúa til virkni, þjálfunar og þátttöku í félagslífi
  • Samstarf við íbúa, aðstandendur og annað starfsfólk
  • Tryggja að framkvæmd þjónustu sé í samræmi við lög og reglur
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslenskukunnátta
  • Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reglusemi áskilin
  • Starfsmaður skal hafa hreint sakavottorð
  • Reynsla af umönnunarstörfum æskileg
  • Bílpróf æskilegt
  • Starfsmaður þarf að starfa í samræmi við gildi Sólheima
Fríðindi í starfi
  • Aðgangur að líkamsrækt og sundlaug.
Auglýsing birt10. október 2025
Umsóknarfrestur19. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Sólheimar 168279, 801 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar