NPA Setur Suðurlands ehf.
NPA Setur Suðurlands ehf.

NPA aðstoðarfólk á Selfossi

Vilt þú bætast í hóp okkar frábæru aðstoðarmanna?

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru helstu verkefni að aðstoða unga einstaklinga við athafnir daglegs lífs. Starfið er að mestu unnið inni á heimilum notendanna auk þess að fylgja viðkomandi í öllum sínum ferðum. Unnið er á föstum vöktum og eru laun greidd skv. kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar við Starfsgreinasambandið/Eflingu.

Umsækjendur þurfa að framvísa sakavottorði og hafa gild ökuréttindi.

Um fleiri en eitt stöðugildi er að ræða og þurfa umsækjendur að geta hafið störf á tímabilinu 31. október 2025 til 1. janúar 2026.

Nánari upplýsingar um störfin gefa Hafdís Bjarnadóttir s:510-0921 og Inga Sveinbjörg Ásmundsdóttir [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að efla þjónustuþega til sjálfstæðis í leik og starfi
  • Styðja þjónustuþega við að lifa sjálfstæðu og innihaldsríku lífi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þolinmæði og umburðarlyndi
  • Framtakssemi og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og vilji til að taka leiðsögn
  • Sveigjanleiki og umburðarlyndi fyrir verkefnum dagsins
  • Menntun og/eða reynsla af vinnu með fötluðum er kostur en ekki skilyrði
Auglýsing birt4. október 2025
Umsóknarfrestur17. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar