Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sérkennari – Víðistaðaskóli (tímabundin ráðning)

Við í Víðistaðaskóla leitum eftir sérkennara til að bætast í hóp starfsmanna skólans í 80-100% starf. Ráðning er tímabundin út skólaárið. Kennarinn bætist við góðan hóp starfsmanna. Í skólanum ríkir góður starfsandi og er samheldni og samstaða meðal starfsmanna. Í Víðistaðaskóla eru rúmlega 500 nemendur og um 100 starfsmenn.

Sérkennari sinnir kennslu og stuðningi við nemendur og er leitast eftir því í starfinu að styðja við nám, hegðun og líðan nemenda. Kennslan er einstaklingsmiðuð út frá nemandanum eða hópnum.

Við leggjum áherslu á fjölbreytileikann, líðan nemenda og fjölbreytta kennsluhætti. Gildi skólans eru ábyrgð, virðing og vinátta. Í skólanum er unnið eftir SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að styrkja og efla jákvæð samskipti milli nemenda sem annarra í skólasamfélaginu. Við erum heilsueflandi grunnskóli sem hugsar um umhverfi sitt í anda Græn fánans.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Annast sérkennslu samkvæmt markmiðum Aðalnámskrár grunnskóla, með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
  • Koma að teymum nemenda, eftir því sem við á.
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila
  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á unglingastigi
  • Áhugi á að starfa með ungmennum.
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, í síma 6645890, [email protected] eða Valgerður Júlíusdóttir, aðstoðarskólastjóri, í síma 6645891, [email protected]

Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni http://www.vidistadaskoli.is

Umsóknarfrestur er til og með 28. október 2025

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt14. október 2025
Umsóknarfrestur28. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (22)