

Skemmtilegt starf í búsetukjarna í Mosfellsbæ
Við í búsetukjarnanum Hulduhlíð í Mosfellsbæ leitum að drífandi, jákvæðum og samviskusömum starfskrafti sem hefur mikinn áhuga á samskiptum og að vinna með fólki. Í boði er skemmtilegt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi.
Í búsetukjarnanum Hulduhlíð búa fjórir íbúar og einnig er veitt utankjarnaþjónusta til fjögurra annarra sem búa á eigin heimilum.
Um er að ræða sólarhringsþjónustu á heimilum fólks svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-. kvöld-, helgar- og næturvöktum).
Um er að ræða tímabundið starf í hlutastarfi, 50–80% starfshlutfall eftir samkomulagi. Starfið er laust strax og möguleiki er á áframhaldandi ráðningu.
Starfsfólk búsetukjarnans í Hulduhlíð aðstoðar fatlað fólk við daglegar athafnir og félagslega virkni allan sólarhringinn, allt árið um kring. Við veitum íbúum og þjónustuþegum í utankjarnaþjónustu einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka lífsgæði þeirra með félagslegri virkni. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, að halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar- og félagslífs.
Í Hulduhlíð er starfað eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstæðs lífs.
Við störfum samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk nr. 38/2018.
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Góð almenn menntun
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
- Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar er kostur
- Jákvæðni og samviskusemi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hreint sakavottorð
- Aldursskilyrði 20 ár
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Ökuréttindi skilyrði












