COWI
COWI er alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með höfuðstöðvar í Danmörku og yfir 8.000 starfsmenn sem vinna að um 10.000 verkefnum að staðaldri víða um heim. Í samvinnu við viðskiptavini vinnum við að því að móta þjónustu og lausnir á sviði sjálfbærni sem bæta lífsgæði fólks og komandi kynslóða. Þjónustusviðið okkar nær yfir verkfræði, arkitektúr, orku og umhverfismál.
Við trúum því að velsæld stuðli að betri frammistöðu og að betri frammistaða ýti undir vellíðan. Ef þú hefur áhuga á að ganga til liðs við okkur munt þú starfa með fólki sem er ávallt reiðubúið að rétta fram hjálparhönd. Okkar helsta hvatning er að skapa vinnustað framtíðarinnar; umhverfi þar sem fólk fær að vaxa og dafna. Og þótt að verkefnin okkar séu stór og jafnvel alvarleg þá tökum við okkur sjálf mátulega hátíðlega.
Ef þú gengur til liðs við okkur verður þú hluti af alþjóðlegu samfélagi sérfræðinga þar sem gagnkvæm miðlun á þekkingu fer fram. Þú færð einnig tækifæri til þess að vinna þvert á landamæri og breyta áskorunum í sjálfbærar lausnir. Auk þess er starfsþróun mikilvægur þáttur sem við sinnum vel fyrir hvern og einn starfsmann. Allt þetta stuðlar að því að þú fáir að þróast og þroska nýja hæfni og við fáum verðmætan starfskraft með haldbæra þekkingu. Þannig erum við öll í fararbroddi grænna umskipta.
Fjölbreytt sumarstörf hjá COWI Ísland
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um sumarstörf hjá COWI og við leitum að öflugum og framsýnum háskólanemum til að starfa með okkur í sumar. COWI leggur áherslu á að byggja upp framtíðar starfsfólk með því að bjóða upp á lærdómsríkt og alþjóðlegt vinnuumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri á að taka virkan þátt í krefjandi verkefnum á flestum sviðum verkfræði, tæknivísinda og sjálfbærni. Við hvetjum öll áhugasöm sem stunda háskólanám á fyrrnefndum sviðum til þess að sækja um, en ráðið verður í fjölbreytt störf, í flestum landshlutum og í öllum deildum.
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur í mötuneyti.
- Öflugt starfsmannafélag.
- Samgöngustyrkur.
- Líkamsræktar- og sturtuaðstöðu.
- Bootcamp-æfingar tvisvar í viku, skokkhóp og margt fleira.
Auglýsing birt27. janúar 2025
Umsóknarfrestur10. mars 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Urðarhvarf 6, 203 Kópavogur
Akureyri
Hafnargata 2, 730 Reyðarfjörður
Eyravegur 29, 800 Selfoss
Garðabraut 2A, 300 Akranes
Miðvangur 2-4 2R, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
ByggingafræðingurFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðTæknifræðingurVerkfræðingur
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Sumarstörf 2025 - Háskólanemar
Ístak hf
Sérfræðingur á sviði loftslagsmála - ETS viðskiptakerfi ESB
Umhverfis- og orkustofnun
Sérfræðingur í teymi hafs og vatns
Umhverfis- og orkustofnun
Sviðsstjóri áhættustýringarsviðs
SL Lífeyrissjóður
Sérfræðingur - Deild stöðugleika, líkinda og gagnastjórnunar
Alvotech hf
Verkefnastjóri á þróunarsviði
Reitir fasteignafélag
Umhverfis- og framkvæmdasvið – Verkefnastjóri skipulagsmála
Reykjanesbær
Sérfræðingur á tæknideild á Selfossi
Vegagerðin
Sérfræðingur í siglingum
Vegagerðin
Verkefnastjóri, gæðatrygging
Ísteka
Sumarstörf 2025 - Orkuveitan
Orkuveitan
Avionics Design Engineer
Aptoz