

Liðsfélagi í hóp rafvirkja
JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa í hóp rafvirkja við samsetningu á fjölbreyttum tækjabúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum m.a. upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.
Framleiðsla JBT Marel í Garðabæ sérhæfir sig í stuðningi við vöruþróun og framleiðslu á sérhönnuðum verkefnum fyrir okkar viðskiptavini.
Starfið felur í sér:
- Víringar á rafmagnstöflum og tengingar á búnaði
- Samsetningu fjölbreyttra tækja og búnaðar
- Spennusetning og úttekt á öryggisbúnaði
- Stillingar, prófanir og gæðaúttektir ásamt frágangi fyrir útflutning
Hæfniskröfur:
- Sveinspróf í rafvirkjun (nemar koma til greina)
- Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
- Tölvuþekking og áhugi á tækniþróun
- Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
- Samviskusemi, metnaður og góð öryggisvitund
- Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
- Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)
- Áhugi á að vaxa og læra
Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, heidrun.hreidarsdottir@marel.com.
Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel (www.marel.com).












