Marel
Marel
Marel

Liðsfélagi í samsetningu á vogum og rafbúnaði

Liðsfélagi í samsetningu á vogum og rafbúnaði – Rafvirkjar og rafeindavirkjar

JBT Marel leitar að kraftmiklum liðsfélaga til starfa við samsetningu á fjölbreyttum vigtarbúnaði og rafbúnaði.
Unnið er í sjálfstæðum teymum sem samanstanda af 10-20 einstaklingum á öllum aldri og kynjum og bera þau sameiginlega ábyrgð á að ljúka framleiðslu hverrar vöru. Allir nýir starfsmenn fá þjálfun. Við bjóðum m.a. upp á fyrsta flokks vinnuumhverfi, fjölskylduvænan vinnutíma, frábært mötuneyti með heitum mat í hádeginu og aðstöðu til líkamsræktar.

Starfið felur í sér:

  • Samsetningu á vogum og ýmsum rafbúnaði (t.d. iðntölvur, skynjurum og skjáeiningum)
  • Spennusetning og gæðaúttekt
  • Uppsetning á hugbúnaði, stillingar og prófanir ásamt frágangi fyrir útflutning

Hæfniskröfur:

  • Sveinspróf í rafvirkjun eða rafeindavirkjun (eða haldbær reynsla í faginu)
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði
  • Góð enskukunnátta í rituðu máli
  • Mjög góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun
  • Góð færni í samskiptum og áhugi á teymisvinnu
  • Góð öryggisvitund, samviskusemi og metnaður
  • Jákvæðni, almenn lífsgleði og lausnamiðuð hugsun
  • Áhugi á umbótastarfi (stöðugum umbótum)

Áhugasamir einstaklingar án tillits til kyns eru hvattir til að sækja um starfið. Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðrún Hreiðarsdóttir, [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 24. apríl 2025. Sótt er um starfið á heimasíðu Marel (www.marel.com).

Auglýsing birt14. apríl 2025
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurhraun 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar